Ráðherra lækki út­varps­gjaldið

Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á Illuga Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, að berjast fyrir skattalækkunum fyrir heimilin í landinu, með því að standa ekki í vegi fyrir lækkun útvarpsgjaldsins um 1.400 krónur á mann.

Hægt er að uppfylla grunnhlutverk Ríkisútvarpsins með öðrum og hagkvæmari leiðum en rekstri á ríkisstofnun sem ber sig ekki að óbreyttu. Ríkisútvarpið hefur tapað 800 milljónum króna frá árinu 2007 og virðist sem að alltaf sé hægt að velta tapinu yfir á íslenska skattgreiðendur.

Nýleg skýrsla nefndar um málefni Ríkisútvarpsins sýnir einnig að stofnunin nær varla að sinna því hlutverki sem henni ber. Er kominn tími til þess, líkt og segir í samþykkt nýliðins landsfundar Sjálfstæðisflokksins að endurskilgreina þörf samfélagsins fyrir ríkisfjölmiðil. Þá hefur ohf-formið ekki náð að sýna gildi sitt, og væri því rétt að leggja Ríkisútvarpið ohf. niður í núverandi mynd.

Það er mikill misskilningur að íslensk menning þrífist ekki án aðkomu Ríkisútvarpsins. Þeim fjármunum, sem varið hefur verið í óhagkvæman rekstur stofnunarinnar, hefði getað verið mun betur varið, til dæmis með sérstökum styrktarsjóð fyrir framleiðslu innlends efnis, eða til varðveislu á menningararfleifð og sögu þjóðarinnar. Um leið myndi opnast fyrir alvöru samkeppni á fjölmiðlamarkaði, þegar ríkið væri ekki að vasast þar lengur með styrkjum úr ríkissjóði og auglýsingatekjum.