Frelsisverðlaun SUS voru veitt við hátíðlega athöfn í Valhöll þann 3. október. Var þetta í tólfta sinn sem verðlaunin voru veitt en stjórn Sambandsins veitir verðlaunin.
Að venju voru verðlaunin veitt einum einstaklingi og einum lögaðila. Báðir verðlaunahafar í ár eiga það sameiginlegt að berjast fyrir auknu atvinnufrelsi.
Ásdís Halla Bragadóttir hlaut verðlaunin fyrir áralanga baráttu sína fyrir auknu valfrelsi í heilbrigðis- og menntamálum. Sem bæjarstjóri Garðabæjar studdi hún við sjálfstæðan rekstur skóla í sveitarfélaginu. Hefur það leitt til þess að skólakerfið í Garðabæ er fjölbreyttara, sveigjanlegra og þjónustar nemendur betur en ella. Þá hefur Ásdís verið áberandi í umræðunni á þessu ári um baráttu Kliníkurinnar í Ármúla fyrir sjálfstæðum rekstri í heilbrigðiskerfinu. Slíkur rekstur bætir þjónustu við sjúklinga, styttir biðraðir og nýtir skattfé betur.
Sá lögaðili sem hlaut verðlaunin í ár er Hvalur hf., en Kristján Loftsson, forstjóri fyrirtækisins, tók við verðlaununum. Hvalur hf. hlaut verðlaunin fyrir baráttu sína fyrir hvalveiðum á Íslandsmiðum. Hvalveiðar fela í sér mikilvægt atvinnufrelsi en Hvalur hf. hefur í fjölmörg ár barist fyrir því að veiðar á hvölum séu leyfðar, enda er um sjálfbæra nýtingu að ræða sem styðst við vísindaleg gögn.
Ingvar S. Birgisson, formaður SUS, ávarpaði fundinn og veitti verðlaunin fyrir hönd stjórnarinnar.