Hátt í 200 ungir sjálfstæðismenn sóttu 47. Sambandsþing Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) sem haldið var á Hótel Selfoss um helgina. Viktor Pétur Finnsson var þar kjörinn formaður SUS og tekur við af Lísbet Sigurðardóttur, fráfarandi formanni SUS. Steinar Ingi Kolbeins, var endurkjörin í embætti 1. varaformanns og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir var kjörin í embætti 2. varaformanns Sambandsins.
Ásamt Viktori, Steinari og Gunnlaugu voru 39 aðrir einstaklingar kjörnir í stjórn sambandsins
Hægri sveifla á stefnu SUS
Á þinginu voru mál líðandi stundar í deiglunni sem og málefna ungs fólks. Aðaláherslumál þingsins voru að þessu sinni mennta- og skólamál, heilbrigðismál, húsnæðismál og verndarkerfi flóttamanna.
„Aðaláherslumál ungra sjálfstæðismanna á þinginu voru skýr og það var mikil hægri sveifla á stefnu okkar. Við viljum frelsisbyltingu í menntamálum með því að taka upp ávísanakerfi og fjölga sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum. Þannig getum við stóreflt nám á Íslandi, gefið foreldrum raunverulegt frelsi um menntun barna sinna sem byggir á þörfum og styrkleikum hvers barns á sama tíma og við bætum kjör og starfsaðstæður skólastarfsfólks.
Það sama er upp á teningnum í heilbrigðismálum. Við þurfum að fjölga einkareknum heilsugæslum, sérstaklega á landsbyggðinni, til að tryggja fólki betri þjónustu. Með því að láta fé fylgja sjúklingnum sköpum við hvata fyrir heilbrigðisstofnanir að bæta gæði og skilvirkni svo bið eftir heilbrigðisþjónustu minnki. Svona aukum við samkeppni og biðlistar minnka á sama tíma og þjónusta batnar til muna án þess að kosta einstaklinginn fúlgur fjár,” segir Viktor Pétur, formaður SUS.
Uppfærð stenfa í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd
Yfirgnæfandi samstaða var um það í málefnastarfi þingsins að finna þurfi lausnir við þeim vandamálum í kerfinu sem snýr að umsækjendum um alþjóðlega vernd. Samþykkt var á þinginu að setja í stefnu SUS að stutt sé við þá hugmynd að koma á fót búsetuúrræðum með takmörkunum fyrir þá hælisleitendur sem ekki eiga samvinnu við yfirvöld, í kjölfar þess að hafa fengið synjun um hæli, þar til að brottvísun kemur og samrýmast þar með Schengen-svæðinu.
“Einnig tökum við skýrt fram í stefnunni að kærunefnd útlendingamála þurfi að endurskoða, enda er hún ólýðræðisleg og tekur veigamiklar ákvarðanir sem varða til að mynda fjármál hins opinbera án þess að bera neina pólitíska ábyrgð,” segir Viktor að lokum.
Stjórnmálaályktun þingsins og uppfærð stefna SUS verður aðgengileg á heimasíðunni á næstu dögum.
Framboðið í heild sinni
Hér fyrir neðan má lesa nöfn þeirra sem buðu sig fram til stjórnar SUS ásamt Viktori, Steinari og Gunnlaugu:
Embla Kristín BlöndalÁsgeirsdóttir
Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir
Sindri Már Smárason
Björn Gunnar Jónsson
Daníel Hjörvar Guðmundsson
Eyrún Reynisdóttir
Kristinn Jökull Kristinsson
Selma Guðjónsdóttir
Kristófer Már Maronsson
Steinar Ingi Kolbeins
Garðar Árni Garðarsson
Arent Orri Jónsson
Magnús Benediktsson
Sonja Dís JohnsonGuðlaugsdóttir
Júlíus Viggó Ólafsson
Jón Birgir Eiríksson
Eymar Jansen
Jens Ingi Andrésson
Victor Snær Sigurðarson
Lovísa Ólafsdóttir
Birta Karen Tryggvadóttir
Snædís Edwald
Bryndís Bjarnadóttir
Salka Sigmarsdóttir
Dóra Tómasdóttir
Hermann Nökkvi Gunnarsson
Sveinn Ægir Birgisson
Logi Þór Ágústsson
Ingveldur Anna Sigurðardóttir
Ragnar Óskarsson
Guðni Kjartansson
Kristín AmyDyer
Einar Freyr Bergsson
Ragnar Bjarni ZoëgaHreiðarsson
Franklín Ernir Kristjánsson
Halldór Lárusson
Helga Björg Loftsdóttir
Birkir Örn Þorsteinsson
Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann
Inga Þóra Pálsdóttir