Viktor Pétur kjörinn formaður SUS

Viktor Pétur Finnsson var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) á 47. sambandsþingi SUS sem haldið var um helgina. Steinar Ingi Kolbeins var endurkjörinn í embætti 1. varaformanns og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir kjörin í embætti 2. varaformanns

Steinar Ingi Kolbeins, Viktor Pétur Finnsson og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir

Hátt í 200 ungir sjálfstæðismenn sóttu 47. Sambandsþing Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) sem haldið var á Hótel Selfoss um helgina. Vikt­or Pét­ur Finns­son var þar kjör­inn formaður SUS og tek­ur við af Lís­bet Sig­urðardótt­ur, frá­far­andi for­manni SUS. Stein­ar Ingi Kol­beins, var end­ur­kjör­in í embætti 1. vara­for­manns og Gunn­laug Helga Ásgeirs­dótt­ir var kjör­in í embætti 2. vara­for­manns Sam­bands­ins. 

Ásamt Viktori, Steinari og Gunnlaugu voru 39 aðrir einstaklingar kjörnir í stjórn sambandsins

Hægri sveifla á stefnu SUS

Á þinginu voru mál líðandi stundar í deiglunni sem og málefna ungs fólks. Aðaláherslumál þingsins voru að þessu sinni mennta- og skólamál, heilbrigðismál, húsnæðismál og verndarkerfi flóttamanna.

„Aðaláherslumál ungra sjálfstæðismanna á þinginu voru skýr og það var mikil hægri sveifla á stefnu okkar. Við viljum frelsisbyltingu í menntamálum með því að taka upp ávísanakerfi og fjölga sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum. Þannig getum við stóreflt nám á Íslandi, gefið foreldrum raunverulegt frelsi um menntun barna sinna sem byggir á þörfum og styrkleikum hvers barns á sama tíma og við bætum kjör og starfsaðstæður skólastarfsfólks.

Það sama er upp á teningnum í heilbrigðismálum. Við þurfum að fjölga einkareknum heilsugæslum, sérstaklega á landsbyggðinni, til að tryggja fólki betri þjónustu. Með því að láta fé fylgja sjúklingnum sköpum við hvata fyrir heilbrigðisstofnanir að bæta gæði og skilvirkni svo bið eftir heilbrigðisþjónustu minnki. Svona aukum við samkeppni og biðlistar minnka á sama tíma og þjónusta batnar til muna án þess að kosta einstaklinginn fúlgur fjár,” segir Viktor Pétur, formaður SUS.

Uppfærð stenfa í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd

Yfirgnæfandi samstaða var um það í málefnastarfi þingsins að finna þurfi lausnir við þeim vandamálum í kerfinu sem snýr að umsækjendum um alþjóðlega vernd. Samþykkt var á þinginu að setja í stefnu SUS að stutt sé við þá hugmynd að koma á fót búsetuúrræðum með takmörkunum fyrir þá hælisleitendur sem ekki eiga samvinnu við yfirvöld, í kjölfar þess að hafa fengið synjun um hæli, þar til að brottvísun kemur og samrýmast þar með Schengen-svæðinu.

“Einnig tökum við skýrt fram í stefnunni að kærunefnd útlendingamála þurfi að endurskoða, enda er hún ólýðræðisleg og tekur veigamiklar ákvarðanir sem varða til að mynda fjármál hins opinbera án þess að bera neina pólitíska ábyrgð,” segir Viktor að lokum.

Stjórnmálaályktun þingsins og uppfærð stefna SUS verður aðgengileg á heimasíðunni á næstu dögum.

Fram­boðið í heild sinni

Hér fyr­ir neðan má lesa nöfn þeirra sem buðu sig fram til stjórn­ar SUS ásamt Vikt­ori, Stein­ari og Gunn­laugu:

Embla Krist­ín Blön­dalÁsgeirs­dótt­ir    

Hulda Dröfn Svein­björns­dótt­ir

Sindri Már Smára­son  

Björn Gunn­ar Jóns­son

Daní­el Hjörv­ar Guðmunds­son

Eyrún Reyn­is­dótt­ir      

Krist­inn Jök­ull Krist­ins­son      

Selma Guðjóns­dótt­ir   

Kristó­fer Már Mar­ons­son        

Stein­ar Ingi Kol­beins  

Garðar Árni Garðars­son          

Ar­ent Orri Jóns­son      

Magnús Bene­dikts­son 

Sonja Dís John­sonGuðlaugs­dótt­ir      

Júlí­us Viggó Ólafs­son 

Jón Birg­ir Ei­ríks­son    

Eym­ar Jan­sen

Jens Ingi Andrés­son    

Victor Snær Sig­urðar­son         

Lovísa Ólafs­dótt­ir       

Birta Kar­en Tryggva­dótt­ir   

Snæ­dís Edwald

Bryn­dís Bjarna­dótt­ir   

Salka Sig­mars­dótt­ir     

Dóra Tóm­as­dótt­ir        

Her­mann Nökkvi Gunn­ars­son

Sveinn Ægir Birg­is­son 

Logi Þór Ágústs­son     

Ing­veld­ur Anna Sig­urðardótt­ir

Ragn­ar Óskars­son       

Guðni Kjart­ans­son      

Krist­ín AmyDyer       

Ein­ar Freyr Bergs­son  

Ragn­ar Bjarni ZoëgaHreiðars­son       

Frank­lín Ern­ir Kristjáns­son     

Hall­dór Lár­us­son        

Helga Björg Lofts­dótt­ir           

Birk­ir Örn Þor­steins­son           

Katrín Sig­ríður Þor­steins­dótt­ir Bachmann           

Inga Þóra Páls­dótt­ir